Ákvörðun verkefna
Stjórnarskráin kveður á um rétt fólks
Í stjórnarskránni segir að öllum skuli tryggður réttur til aðstoðar vegna sjúkleika, örorku, elli, atvinnuleysis, örbirgðar og sambærilegra aðstæðna. Sömuleiðis segir að allir eigi rétt á almennri menntun og fræðslu við sitt hæfi.
Ennfremur kemur fram í stjórnarskráinnni að börnum skuli tryggð með lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst.
Stjórnarskráin leggur þannig ákveðnar skyldur á opinbera aðila, bæði ríki og sveitarfélög.
Lög og reglugerðir ákveða skyldur opinberra aðila
Alþingi setur lög um það hvernig opinberir aðilar skuli sinna þessum skyldum og öðrum verkefnum sem þeir taka að sér, þar að meðal hvaða heimildir opinberir aðilar hafa til aðgerða. Ráðuneytin setja síðan reglugerðir sem segja nánar til um framkvæmdina en reglugerðirnar verða að rúmast innan þeirra marka sem lögin heimila.
Á síðari árum er það orðið algengara að kveða ekki eins ítarlega á um verkefnin í lögum og reglugerðum eins og áður. Það er gert til þess að gefa þeim sem sjá um framkvæmdina nægjanlegt svigrúm til að stýra verkefnum í samræmi við áherslur á hverjum tíma, breytingar á tækni, samgöngur, þarfir fólks fyrir þjónustu og fleiri þætti.
Opinberum verkefnum er skipt milli ríkis og sveitarfélaga
Ríki og sveitarfélög skipta með sér verkum og er miðað við að skiptingin sé sem skýrust. Til dæmis sjá sveitarfélögin um leikskóla og grunnskóla en ríkið um framhaldsskóla og háskóla. Verkefnin geta verið bæði stór og smá og sum eru tímabundin en önnur viðvarandi. Bygging skólahúss er dæmi um tímabundið verkefni en rekstur skólans er viðvarandi.
Peningarnir ráða umfanginu
Þótt verkefnin séu ákveðin víða og flest séu lögbundin með einum eða öðrum hætti þá segir í stjórnarskránni að ríkið megi ekki kosta meiru til þeirra en heimilað er í fjárlögum. Peningarnir takmarka því verkefnin og þjónustuna sem ríkið veitir.
Lögin lýsa vilja ríkisins til að sinna verkefnum en umfang verkefnanna ræðst af því hversu miklum peningum er varið til þeirra. Endanleg heimild til verkefna verður því alltaf að vera í fjárlögum.
