Ríkið og einkaaðilar

Sum verkefni eru þess eðlis að heppilegt er að fela einkaaðilum að annast þau. Þegar verkefni eða þjónusta á vegum ríkisins er færð til einkaaðila eru ýmsar leiðir farnar s.s. einkavæðing, þjónustusamningar eða einkaframkvæmd. Almenna reglan er að bjóða út slík verkefni.


Einkavæðing
IðnaðarhúsnæðiEinkavæðing nefnist það þegar fyrirtæki í ríkiseigu eða eignarhlutur ríkisins í fyrirtæki er seldur til aðila á einkamarkaði. Ákvörðun um sölu ríkisfyrirtækis byggir á þeirri stefnu að ríkið dragi sig úr rekstri fyrirtækja sem starfa á markaði og eru jafn vel eða betur komin í höndum einkaaðila.

Meðal skilyrða sem sett eru fyrir einkavæðingu er að fyrirtækið hafi verið gert að hlutafélagi, nægjanleg samkeppni ríki á viðkomandi markaði og að fyrirtækið njóti ekki sérstakra réttinda af hálfu ríkisins umfram önnur eftir söluna.

Fyrirtæki eru ýmist seld með tilboðssölu hlutabréfa til fjárfesta og/eða fyrirtækja, þar sem leitað er hæstu tilboða í tilgeindan fjölda hlutabréfa, eða í dreifðri sölu til almennings, þar sem verð hlutabréfanna er ákveðið fyrirfram og kaupendum, oftast einstaklingum, er gefinn kostur á að skrá sig fyrir takmarkaðri fjárhæð.


Einkaframkvæmd
SamgöngumannvirkiEinkaframkvæmd felst í því að ríkið gerir samning við einkaaðila um að hann veiti ákveðna þjónustu og annist tiltekna framkvæmd sem krefst umtalsverðrar fjárfestingar og er samningstíminn þess vegna langur. Í samningi milli aðila um einkaframkvæmd er kveðið á um hvernig þeir hyggjast skipta með sér áhættunni af viðkomandi verkefni. Einkaaðilum er falið að fullnægja félagslegum markmiðum ríkisins á viðskiptalegum forsendum.

Einkaframkvæmd er frábrugðin einkavæðingu að því leyti að opinberir aðilar hafa áfram afskipti af verkefninu. Ríkið sér til dæmis um að skilgreina veitta þjónustu. Samningur um einkaframkvæmd nær til heildarlausnar á tilteknu verkefni en ekki aðeins til rekstrarþáttar verkefnis eins og þjónustusamningur myndi gera.

Dæmi um einkaframkvæmd er gerð ganga undir Hvalfjörð þar sem frumkvæðið varð til hjá einkaaðila sem lét grafa göngin og annast rekstur þeirra. Aðkoma ríkisins var með þeim hætti að það lagði fé til verkefnisins og samþykkti að ráðast ekki í stórfellda uppbyggingu á veginum um Hvalfjörð á samningstímanum. Annað dæmi um einkaframkvæmd er bygging og rekstur Hjúkrunarheimilis við Sóltún.


Þjónustusamningar
Teiknuð mynd af opnum peningakassaMeð þjónustusamningi er átt við samning milli ráðuneytis eða ríkisstofnunar annars vegar og einkaaðila hins vegar um þjónustu eða afmarkað rekstarverkefni.

Bæði getur verið um að ræða stoðþjónustu sem ríkið þarf vegna sinnar eigin starfsemi, svo sem rekstur á tölvukerfi, eða þjónustu sem ríkinu er ætlað að veita almenningi eða fyrirtækjum. Verksali getur verið ríkisstofnun eða aðili sem starfar ekki á ábyrgð ríkisins svo sem hlutafélag, sveitarfélag eða sjálfseignarstofnun.

Þjónustusamningar eru yfirleitt gerðir í þeim tilgangi að bæta þjónustu, auka hagkvæmni í rekstri ríkisins og nýta sérþekkingu eða aðstöðu sem of dýrt yrði að byggja upp innan ríkisins.

Samningar við einkarekin meðferðarheimili fyrir börn í langtímameðferð á vegum Barnaverndarstofu eru dæmi um þjónustusamniga sem ríkið hefur gert um tiltekna þjónustu. Eins má nefna hjúkrunarheimili, en þau eru öll með þjónustusamninga við ríkissjóð og fá greitt samkvæmt ákveðnu reiknilíkani, þar sem tekið er mið af umönnunarþyngd vistmanna. Samningar um þjónustu Háskólans í Reykjavík, Verslunarskóla Íslands og SÁÁ eru einnig dæmi um þjónustusamninga.


Útvistun verkefna
Með útvistun er átt við það þegar viðvarandi rekstrarverkefni sem ríkið hefur með höndum er boðið út á einkamarkaði í stað þess að það sinni því sjálft með eigin mannafla og aðstöðu. Verkefnin geta t.d. varðað stoðþjónustu sem stofnun á vegum ríkisins þarf á að halda til eigin starfsemi, aðkeypta sérfræðiaðstoð eða jafnvel rekstur stofnunar í heild sinni svo sem mennta-, rannsóknar- eða umönnunarstofnun.

Ákvörðun um útvistun er tekin að afloknu mati á kostnaði og hagkvæmni þess að ríkið sinni sjálft verkefninu eða felur það einkaaðila. Þá er einnig reynt að meta hvort á einkamarkaði sé nægjanleg samkeppni og þekking á viðkomandi sviði. Þá er verkefnið boðið út og ef hagstæð tilboð berast er gerður þjónustusamningur við þann aðila sem best býður í verkefnið, m.t.t. fjárhæðar og gæða á þeirri þjónustu sem boðin er.


Ítarefni