Ríkisrekstur

Það skiptir almenning miklu að staðið sé vel að opinberum rekstri, farið sé vel með skattfé og veitt góð þjónusta.


Munur á markmiðum og leiðum
Rétt er að átta sig á því að gera þarf greinarmun á markmiðum og leiðum. Eitt af markmiðum hins opinbera er að allir landsmenn eigi kost á sem fullkomnustu heilbrigðisþjónustu. Til þess að ná markmiðinu eru farnar margar leiðir. Sumt sjá ríkisstofnanir um að gera, annað er gert með aðild sveitarfélaga og svo sjá einkaaðilar um ýmsa þætti, en í þann flokk falla m.a. félagasamtök, sjálfseignarstofnanir, fyrirtæki og menn í sjálfstæðum rekstri.


Verkaskipting ræðst af aðstæðum
Það er ekki til nein allsherjarregla um verkaskiptingu milli opinberra aðila og aðila sem starfa á markaði. Slík regla er heldur ekki til um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, eða í hvaða tilvikum opinberir aðilar fá einkaaðila til liðs við sig vegna opinberra verkefna. Mat á þessu er meðal annars háð viðhorfum í þjóðfélaginu, þar á meðal stjórnmálum, og getu markaðarins.


ÍslandUmsvif hins opinbera hafa vaxið
Fyrir um það bil hundrað árum voru umsvif hins opinbera lítil hér á landi eins og í flestum vestrænum ríkjum. Það breyttist þegar leið á öldina og fólk hafði mikla trú á að hinu opinbera sem virkum þátttakanda í því að byggja upp og bæta hag fólks.

Upp úr 1980 urðu þær raddir háværari sem töldu að einstaklingar ættu að fá meira svigrúm til athafna og að þeir gætu tekið ýmislegt að sér sem opinberir aðilar höfðu annast. Sömuleiðis hafa orðið töluverðar breytingar á verka- og kostnaðarskiptingu á milli ríkis og sveitarfélaga. Þannig færðist rekstur grunnskóla til sveitarfélaga frá ríkinu haustið 1996 og ábyrgð á skipulagi og framkvæmd þjónustu við fatlað fólk í byrjun árs 2011.

Stöðugt er verið að skoða verkefni hins opinbera með tilliti til þess hvernig þeim verði best sinnt.

Ítarefni




Þetta vefsvæði byggir á Eplica