Ríkisstofnanir
Ríkið sér sjálft um meirihluta þeirra verkefna sem eru á ábyrgðarsviði þess. Aðilar ríkisins eru flokkaðir í A-, B-, C-, D- og E-hluta eftir því hvernig ríkið kemur að rekstrinum.
A-hluti
A-hluti er umfangsmestur enda heyrir til hans rekstur sem veitir almenna þjónustu og er að stærstum hluta fjármagnaður af skatttekjum ríkissjóðs.
Til A-hluta heyra ráðuneyti, ríkisstofnanir, ýmsir styrktarsjóðir, en einnig fara þar í gegn öll framlög úr ríkissjóði til B- og C-hlutans, sveitarfélaga, einstaklinga, samtaka og atvinnuvega.
Dæmi um stofnanir í A-hluta eru:
- framhaldsskólar,
- háskólar,
- sjúkrahús,
- heilsugæslustöðvar,
- skattstjóra-, sýslumanns- og lögregluembætti og
- sendiráð.
Ríkisstofnanir í A-hluta eru nátengdar ráðuneytunum þótt þeim sé ætlað að starfa sjálfstætt. Um stjórnun þeirra, fjármál, starfsmannahald og rekstur gilda sérstök lög og reglur ásamt sérlögum um hverja stofnun eða stofnanahópa. Yfir hverri stofnun er forstöðumaður, skipaður af ráðherra, en hjá sumum er einnig stjórn sem fæst við stefnumótun og eftirlit með rekstrinum.
B-hluti
Til B-hluta teljast ríkisfyrirtæki er starfa á markaði og standa að öllu eða verulegu leyti undir kostnaði við starfsemi sína með tekjum af sölu á vöru eða þjónustu til almennings og fyrirtækja, hvort sem er í samkeppni eða í skjóli einkaréttar, enda séu þau hvorki sameignar- né hlutafélög.
B-hluta fyrirtæki njóta meira sjálfstæðis í rekstri en A-hluta stofnanir. Meðal B-hluta fyrirtækja er smásöluverslun ÁTVR og rannsóknafyrirtækið Íslenskar orkurannsóknir.
C-hluti
Til C-hluta teljast lánastofnanir í eigu ríkisins aðrar en innlánsstofnanir, enda séu þær hvorki sameignar- né hlutafélög.
C-hluta stofnanir njóta sömuleiðis meira sjálfstæðis í rekstri en A-hluta stofnanir. Meðal C-hluta stofana eru Byggðastofnun og Íbúðalánasjóður.
D-hluti
Til D-hluta teljast fjármálastofnanir ríkisins, þar með taldir bankar og vátryggingafyrirtæki í eigu ríkisins, enda séu þær hvorki sameignar- né hlutafélög.
Í D-hluta ríkisins eru þrjár stofnanir, allar mjög sjálfstæðar, þar á meðal Seðlabanki Íslands.
E-hluti
Til E-hluta teljast sameignar- og hlutafélög sem ríkið á að hálfu eða meira.
Landsbankinn hf., Isavia ohf. og Neyðarlínan hf. eru dæmi um slík félög og starfa þau mjög sjálfstætt.
