Stjórnarhættir
Samkvæmt reglugerð um Stjórnarráð Íslands fer fjármálaráðuneytið með almennar umbætur í ríkisrekstri. Stöðugt er unnið að slíkum umbótum sem snúa að innri rekstri ríkisins og stjórnarháttum þess.
Á tíunda áratugnum var unnið eftir stefnu um nýskipan í ríkisrekstri en á þeim grunni hefur verið mörkuð ný stefna í umbótar og hagræðingarmálum ríkisins undir heitinu árangursríkur ríkisrekstur. Kjörorð þeirra stefnu eru skilvirk þjónusta á einfaldan og hagkvæman hátt.
Stefna um árangursríkan ríkisrekstur byggist á fimm meginmarkmiðum á sviði umbóta í ríkisrekstri. Þau lúta að
- skipulagi ríkisrekstrar,
- stjórnháttum hjá ríkinu,
- fjármálastjórn,
- starfsmannastjórn og
- samskiptum ríkis og einkamarkaðar.
Markmiðunum fimm er síðan skipt niður í undirmarkmið og áhersluatriði.
Á grunni meginstefnu í umbóta og hagræðingarmálum er síðan ráðist í einstök átaksverkefni sem miðað að því að bæta ríkisreksturinn og samskipti ríkis og einkamarkaðar. Helstu nýjungar í stjórnarháttum ríkisins á undanförnum árum eru:
- Innleiðing árangursstjórnunar
- Breytingar í starfsmannamálum ríkisins
- Setning innkaupastefnu fyrir ríkið og á grunni hennar útvistunarstefna (PDF 536 KB)
- Leiðbeiningar um gerð, framkvæmda og eftirfylgni þjónustusamninga
