Sveitarfélagarekstur

Sveitarfélög annast hluta af hinum opinbera rekstri og er tilflutningur verkefna frá ríki til sveitarfélaga því aðeins breyting á því hvaða stjórnsýslustig ber ábyrgð.

Miklu skiptir að verkefni hins opinbera séu leyst á því stjórnsýslustigi þar sem hagkvæmast er, en jafnframt að tekjustofnar og fjárhagsleg ábyrgð fylgi verkefnum.


Lögbundin grunnþjónusta
Sveitarfélög annast grunnþjónustu á hlutaðeigandi svæði samkvæmt lögum og reglum. Flest verkefni sveitarfélaga eru lögbundin, svo sem rekstur leikskóla og grunnskóla, staðbundin félagsþjónusta, brunamál, skipulagsmál og samgöngumál.


Önnur þjónusta
Svo eru önnur verkefni sem ekki eru lögbundin en sveitarfélög vilja taka þátt í. Íþrótta- og tómstundamál, bygging sundlauga og íþróttamannvirkja og menningarmál eru dæmi um slík verkefni.Nemendur á skólabekk


Grunnskólinn til sveitarfélaganna
Árið 1996 var kennsla í grunnskólum og rekstur sérskóla færð frá ríkinu til sveitarfélaganna og frá þeim tíma báru sveitarfélögin ein ábyrgð á rekstri þeirra en fyrir þann tíma var ábyrgð á skólahaldinu skipt milli ríkis og sveitarfélaga. Sveitarfélögin reka leikskóla og tónlistarskóla en ríkið framhaldsskóla og háskóla.


Félagsþjónusta sveitarfélaga
Sveitarfélög sjá um að veita íbúum félagslega þjónustu og aðstoð. Félagsþjónusta sveitarfélaga heyrir undir velferðarráðuneytið sem hefur eftirlit með því að sveitarfélögin veiti lögbundna þjónustu.


Málefni fatlaðs fólks
Málefni fatlaðs fólks voru flutt frá ríki til sveitarfélaga í upphafi árs 2011. Velferðarráðherra fer með yfirstjórn málefna fatlaðs fólks og ber ábyrgð á opinberri stefnumótun í málaflokknum í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga og í samráði við heildarsamtök fatlaðs fólks og aðildarfélög þeirra. Sveitarfélög bera ábyrgð á skipulagi og framkvæmd þjónustu við fatlað fólk, þar með talið gæðum þjónustunnar og kostnaði vegna hennar.


Samband íslenskra sveitarfélaga
Nánari upplýsingar um sveitarfélög almennt og rekstur þeirra, sem og vísanir á einstök, sveitarfélög má nálgast á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga – http://www.samband.is/.


Ítarefni