Hvað kostar ... ?
Útgjöld ríkisins eru oft rædd í samhengi stærri verkefna eða heilla málaflokka og þá gjarnan með tölum sem hlaupa á hundruðum milljóna og jafnvel milljörðum.
Önnur aðferð til að varpa ljósi á ríkisútgjöld væri sú að skoða þær einingar sem liggja til grundvallar stóru tölunum eins og gert er hér að neðan.
Þess ber að geta að þetta er meira til gamans gert :-) tölurnar eru meðaltalstölur og án nánari útskýringa. Þeim er fyrst og fremst ætlað að veita innsýn í kostnað við þjónustu ríkisins og varast ber að vitna í þessar tölur sem heimild um raunverulegan kostnað vegna einstakra útgjaldaliða.
Einn háskólanemi á ári = 600.000 krónur
Einn útskrifaður stúdent = 2,4 milljónir króna
Kostnaður vegna kennslu eins námsmanns í háskóla í eitt ár er að meðaltali um 600.000 krónur, eða 1,8 milljónir króna vegna þriggja ára háskólanáms. Heildarkostnaður ríkisins vegna kennslu allra háskólanema er kr. 6,3 milljarðar króna, en það gerir um 22.000 krónur á hvern íbúa landsins, miðað við verðlag á árinu 2004.
Kostnaður vegna hvers námsmanns í framhaldsskóla er að meðaltali um 600.000 krónur á ári. Miðað við fjögur á í framhaldsskóla kostar því útskrifaður stúdent um 2,4 milljónir króna. Kostnaður ríkisins vegna allra framhaldsskóla í landinu er um 9,5 milljarðar króna. Þetta gerir tæpar 33.000 krónur á hvern landsmann eða 131.000 kónur á hverja fjögurra manna fjölskyldu.
Ýmsum kostnaði skólanna er sleppt í þessum samanburði, m.a. kostnaði vegna húsbygginga, námslána, dreifbýlisstyrkja og rannsókna. Raunverulegur kostnaður við menntakerfið er því töluvert hærri.
Íslenskur landbúnaður = 28.000 krónur á ári á íbúa
Ríkið tekur þátt í kostnaði við framleiðslu á mjólk, sauðfjárafurðum og grænmeti samkvæmt samningi við samtök framleiðenda. Að auki leggur ríkið Bændasamtökum Íslands til rekstarframlag og leggur fé í ýmsa sjóði landbúnaðarins. Í fjárlögum 2006 eru greiðslur vegna þessa áætlaðar 8,5 milljarðar króna eða um 28.000 krónur á hvern landsmann.

Mjaðmarkúluaðgerð = 700.000 krónur
Rúmlega 400 sjúklingar fara í liðskiptaaðgerð á hverju ári og er meðallegutími þeirra 7,3 dagar. Heildarkostnaður við meðferð þeirra er rúmlega 1% af heildarkostnaði Landspítala-háskólasjúkrahúss. Meðalkostnaður við sjúkrahúsdvöl, skurðaðgerð og meðferð er u.þ.b. 700.000 krónur á hvern sjúkling.
Námslán = 1/2 lánsfjárhæðarinnar
Skólaárið 2004-2005 tóku 9.700 námsmenn lán hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Lánin námu samtals 7,1 milljörðum króna eða 732 þúsund krónur að meðaltali á hvern lántaka.
Á síðustu árum hefur meðaltals lántakandi tekið lán í þrjú ár og skuldað sjóðnum um 2,3 milljónir að námi loknu. Endurgreiðslur námslána ráðast af tekjum að námi loknu og reikna má með því að meðaltals lántakandi endurgreiði lánið á 22 árum. Ríkið reiðir niður vexti á námslánum og er kostnaður við meðallánið rúmlega helmingur lánsfjárhæðarinnar þegar allt er talið.
Nýburi = 108.000 krónur
Nýburi tekinn með keisaraskurði = 507.000 krónur
Árið 2004 fæddu 1.436 konur börn á hefðbundinn hátt á Kvennadeild Landspítala-háskólasjúkrahúss, en slíkar fæðingar eru algengastar. Meðallegutíminn var einn dagur og meðalkostnaðurinn við hverja fæðingu u.þ.b. 108.000 krónur. Sama ár voru framkvæmdir 346 keisaraskurðir, án aukakvilla og meðallegutíminn var 5,1 dagur. Meðalkostnaður vegna þeirra sem fengu þessa þjónustu var u.þ.b. 507 þúsund krónur.
Sinfóníutónleikar = 11.000 krónur á gest
Árið 2003 sóttu 40.100 gestir hljómleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands hér á landi auk þess sem 7.280 gestir sóttu hljómleika hennar erlendis.
Rekstur hljómsveitarinnar kostaði 510 milljónir króna alls og þar af innheimtust 77,9 milljónir króna í formi þjónustutekna, aðallega með sölu aðgöngumiða. Sé útgjöldunum og tekjunum jafnað á tónleikagesti kemur í ljós að hver aðgöngumiði kostaði tæplega 11.000 krónur og að gestir greiddu að meðaltali 1.600 krónur fyrir miðann.
Fleiri nutu þó tónlistarinnar en þessar tölur segja því hljómleikum hennar er útvarpað og leikur hennar gefinn út á diskum.
Hjartaþræðing = 200.000 krónur
Tækni við hjartaþræðingar hefur fleygt fram á síðustu árum og þær taka mun styttri tíma en áður. Árið 2004 voru gerðar 399 hjartaþræðingar á Landspítala-háskólasjúkrahúsi. Sjúklingar lágu að meðaltali einungis einn dag á sjúkrahúsinu og kostnaðurinn var að meðaltali um 200.000 krónur á hvern sjúkling.
Leiksýningar = 9.000 krónur á gest
Gestir Þjóðleikhússins voru 73.493 leikárið 2003-2004 auk þess sem 1.272 sáu sýningar þess erlendis. Rekstur leikhússins kostaði 672 milljónir króna árið 2003 og þar af stóðu tekjur, m.a. af miðasölu, undir 178,7 milljónum króna en ríkið greiddi afganginn. Með einföldun má áætla að kostnaður á sýningargest hafi numið 9.000 krónur og að til jafnaðar hafi hver þeirra greitt 2.400 krónur fyrir þjónustu leikhússins.
Bundið slitlag = 2,5 milljónir króna á kílómeter
Á síðustu árum hefur Vegagerð ríkisins látið endurnýja að meðaltali um 550 kílómetra af bundnu slitlagi og látið leggja 125 kílómetra á nýja vegi og malarvegi. Hver kílómetri af bundnu slitlagi kostar um 2,5 milljónir króna. Sé bundið slitlag lagt á malarveg bætist við ýmis undirbúningskostnaður og hækkar töluna upp í milli 5 og 10 milljónir króna á kílómetra. Ef hinsvegar er byggður nýr vegur með bundnu slitlagi er kostnaðurinn yfirleitt meiri en 25 milljónir króna á kílómetra.

Óperusýning = 28.800 króna á gest
Alls sóttu 9.439 gestir Íslensku óperuna leikárið 2003-2004 þegar þátttakendur að samstarfsverkefnum og gestaleikjum eru meðtaldir. Ríkið hefur samning við stofnunina um óperusýningar og sóttu 6.156 gestir þær sýningar og greiddi ríkið tæpar 159 milljónir króna fyrir eða um 28.800 krónur á gest.

Ferjusigling = 33 krónur á hvern kílómetra á mann
Árið 2003 styrkti ríkið ferjusiglingar um 363 milljónir króna. Það ár voru bílar fluttir 2,9 milljón kílómetra og farþegar 11 milljón kílómetra en að auki voru fluttar vörur. Samkvæmt þessu voru að meðaltali 3,8 farþegar í hverjum bíl og sé styrknum skipt niður á farþegana nemur hann 33 krónum á hvern kílómetra.
Myndlistarsýning = 2.700 krónur á gest
Árið 2003 sóttu um 29.300 gestir Listasafn Íslands. Kostnaður við rekstur safnsins nam 105 milljónum króna að frátöldum kostnaði við kaup á listaverkum. Á móti aflaði safnið 37 milljónum króna í tekjur. Safnið fæst við fleira en sýningarhald, en sé gestunum deilt upp í kostnaðinn þá nam nettó kostnaður á gest um 2.730 krónur.
Jarðgöng = 650 milljón krónur á kílómeter
Á undanförnum árum hefur færst í vöxt að gerð séu jarðgöng gegnum fjöll til að bæta samgöngur. Almennt má reikna með að kílómetri í fullbúnum jarðgöngum kosti um 650 milljón krónur en aðstæður hafa áhrif á kostnað og þær geta verið mismunandi eftir stöðum.
Lungnabólga = 727.000 krónur
Árið 2004 voru 224 einstaklingar sem greindust með lungnabólgu, ásamt ýmsum aukakvillum, lagðir inn á Landspítala-háskólasjúkrahús. Að meðaltali lágu þessir einstaklingar rúmlega 14 daga á spítalanum og meðalkostnaður við hvern og einn var rúmlega 727.000 kr.
