Ríkið og efnahagslífið

HeimiliRíkið er mikilvægur þátttakandi í efnahagslífinu en hinar tvær meginstoðir þess eru atvinnulífið og heimilin.

  • Atvinnulífið eða fyrirtækin stunda framleiðslu og verðmætasköpun. Fyrirtækin ráða fólk í vinnu og greiða þeim laun. Þau greiða ríkinu skatta og fá þjónustu fyrir. Heimilin kaupa vöru og þjónustu af atvinnulífinu.
  • Heimilin í landinu útvega vinnuafl og fjármagn til atvinnulífsins. Heimilin eru kaupendur að vöru og þjónustu sem atvinnulífið framleiðir og því sem flutt er til landsins. Fyrir vinnu sína fær fólk greidd laun og af þeim eru greiddir skattar til hins opinbera.
  • Hið opinbera stendur fyrir framkvæmdum og veitir þjónustu og innheimtir skatta af atvinnulífinu og heimilunum til þess að greiða stærstan hluta kostnaðarins. Hið opinbera er samheiti yfir ríki og sveitarfélög.

Umsvif ríkisins eru það umfangsmikil að þau hafa mikil, bein áhrif á hagkerfið. Með efnahagsstjórnuninni er reynt að koma í veg fyrir niðursveiflur og draga úr spennu eftir því sem við á, allt í þeim tilgangi að auka velferð fólksins í landinu. Hið opinbera tekur að sér bæði eftirlits- og ábyrgðarhlutverk í hagkerfinu.

Ítarefni


Þetta vefsvæði byggir á Eplica