Skattar
Árið 2010 voru skattatekjur ríkissjóðs 416 milljarðar króna.
Algengustu skattarnir eru
- tekjuskattur,
- fjármagnstekjuskattur,
- virðisaukaskattur,
- tryggingagjald,
- erfðafjárskattur,
- eignaskattur,
- auðlegðarskattur,
- tollar,
- vörugjöld svo sem af ökutækjum, bensíni og díselolíu, áfengi og tóbaki,
- bifreiðagjald,
- stimpilgjald og
- ýmis leyfis- og eftirlitsgjöld.

Framkvæmd skattamála
Fjármálaráðherra fer með yfirstjórn skattamála. Landið er eitt skattumdæmi með einum ríkisskattstjóra og níu starfsstöðvum. Ríkisskattstjóri annast álagningu opinberra gjalda og þjónustu við skattgreiðendur.
Ríkisskattstjóraembættið hefur umsjón og eftirlit með álagningu skatta og gegnir samræmingarhlutverki í skattframkvæmd. Skattrannsóknarstjóri ríkisins annast rannsókn á skattalagabrotum. Yfirskattanefnd kveður upp úrskurði í ágreiningsmálum um skatta.
Tollstjórinn í Reykjavík og sýslumannsembættin, að undanskildum sýslumanninum í Reykjavík annast innheimtu opinberra gjalda. Með sýslumanninum í Reykjavík eru sýslumannsembættin í landinu 24.

Skattframtöl
Skattlagning á tekjur og eignir fer fram á grundvelli framtals þar sem öll fyrirtæki og allir einstaklingar sem orðnir eru 16 ára gera grein fyrir tekjum sínum og eignum. Nú orðið telja flestir fram á netinu.
|
Framtalsskil einstaklinga
|
2011 |
|---|---|
| Fjöldi einstaklinga á skattgrunnskrá | 260.762 |
| Innsend framtöl | 248.747 |
| Rafræn skattframtöl | 238.201 |
| Hlutfall rafrænna framtala | 95,76% |
|
Framtalsskil lögaðila
|
2010 |
|---|---|
| Skattskyldir | 35.000 |
| Innsend framtöl | 22.786 |
| Rafræn skattframtöl | 22.588 |
| Hlutfall rafrænna framtala | 99% |
Ríkisskattstjóri leggur á skatta og ber saman við innheimt gjöld. Hinn 1. ágúst er heildarálagning á einstaklinga lögð fram og þá veit hver og einn hvort hann hefur fengið greitt til baka frá ríkissjóði, t.d. vegna vaxta- eða barnabóta, eða hvort greiða þarf opinber gjöld utan staðgreiðslu, t.d. vegna sérstaks tekjuskatts sem er lagður á eftir á. Heildarálagning á lögaðila er lög fram í lok október.
Á vef embættis ríkisskattstjóra RSK er að finna nánari upplýsingar um ýmsa skatta sem lagðir eru á af hinu opinbera.
