Verkefni ríkisins

Eftir að Alþingi hefur samþykkt fjárlög er hafist handa við að framkvæma þau. Ríkisstjórn, ráðuneyti og stofnanir þeirra hafa það hlutverk.

Í þessum kafla eru skoðuð helstu verkefni ríkisins frá nokkrum sjónarhornum.


Skipting verkefna
Fyrst er litið á hvernig verkefnin skiptast á ráðuneytin - hver þau eru, hversu stórt hlutfall af útgjöldum ríkisins fer um hvert og eitt þeirra og hver er innbyrðis skipting verkefna í hverju ráðuneyti fyrir sig.


Skipting útgjalda
Næst er skoðað hvernig skipta má útgjöldum ríkisins í þrjá meginflokka eftir eðli verkefnanna, þ.e. hvort um viðvarandi þjónustu og rekstrarverkefni er að ræða, framkvæmdir eða tilfærslur.


Hlutfallsleg hagræn skipting ríkisútgjalda 2010: Rekstur 47%, tilfærslur 48% og framkvæmdir og viðhald 5%.

  • Rekstur, þ.e. rekstrargjöld vegna reksturs ráðuneyta og stofnana þeirra, t.d. sjúkrahús og skólar.
  • Tilfærslur, þ.e. útgjöld vegna greiðslna til aðila án þess að í staðinn komi vinnuframlag eða önnur gæði, t.d. almannatryggingar.
  • Framkvæmdir og viðhald vegna grunngerðar er þriðji liðurinn í útgjöldum ríkisins, s.s. að byggja skóla og sjúkrastofnanir, vegi, jarðgöng og flugvelli.


Skipting útgjalda eftir málaflokkum
Í þriðja lagi má nálgast útgjöld ríkisins með því að skoða skiptingu útgjalda eftir málaflokkum.

  • Málaflokkar skv. alþjóðlegum flokkunarreglum Sameinuðu þjóðanna

Ítarefni




Þetta vefsvæði byggir á Eplica