Framkvæmdir

Ríkið er einn stærsti framkvæmdaaðilinn á landinu. Stór hluti grunngerðar samfélagsins, til að mynda flest sem tengist samgöngum, er framkvæmt af eða á vegum hins opinbera með einum eða öðrum hætti.


Lagning vega
Vegagerðin annast verklegar framkvæmdir ríkisins vegna vega og brúa hvort sem stofnunin framkvæmir þær sjálf eða lætur aðra annast þær fyrir sig.

Í lok árs 1979 voru 273 km af þjóðvegum landsins með bundnu slitlagi. Á árinu 2008 lengdist bundið slitlag á þjóðvegum um 147 km og var það í árslok 4.928 km. Á þessu tímabili frá 1979-2008 hefur að meðaltali verið lagt bundið slitlag á um 160 km á ári.

Í árslok 2010 voru 5.132 km af vegakerfinu með bundnu slitlagi og bættust 151 km við á því ári.



Hlutfallsleg skipting framkvæmda 2010: Vegagerð 59%, Landhelgissjóður 5%, skólar 6%, sjúkrahús og heilsugæsla 6%, hafnamál 7%, sendiráð 4%, flugvellir 2% og annað 11%.


Framkvæmdir ríkisins
Á árinu 2010 námu framkvæmdir ríkisins um 20 milljörðum króna og veigamesti liður framkvæmda er vegna vegagerðar, 59%, eða tæpir 12 milljarðar.

Auk nýframkvæmda Vegagerðarinnar fara miklir fjármunir til viðhalds á núverandi vegakerfi landsins. Á árinu 2010 fóru til að mynda tæpir 5 milljarðar króna í viðhald á vegakerfinu.

Ítarefni


Þetta vefsvæði byggir á Eplica