Ráðuneyti
Þegar talað er um ráðuneyti er yfirleitt átt við aðalskrifstofur ráðuneytanna.
Á aðalskrifstofum ráðuneytanna starfa um 500 manns sem er um 2,5% af fjölda ríkisstarfsmanna. Hvert ráðuneyti skipuleggur og hefur umsjón með ákveðnum verkefnum.
En þegar talað eru um helstu viðfangsefni ráðuneytanna s.s. heilbrigðismál, atvinnumál og félagsmál, svo eitthvað sé nefnt, er yfirleitt átt við aðalskrifstofur ráðuneytanna og hinar ýmsu undirstofnanir. Almennt má segja að aðalskrifstofur ráðuneytanna vinni að stefnumörkun og eftirfylgni en viðeigandi undirstofnanir sjái um framkvæmd stefnumörkunar.
Allar tölur hér eiga við um verkefni ráðuneytanna og undirstofnana þeirra.
Ráðuneytin og ráðherrarnir
Ráðuneytin eru tíu og ráðherrar eru yfirleitt jafn margir. Fjöldi ráðherra getur verið misjafn eftir ríkisstjórnum.
Útgjöld eftir ráðuneytum
Útgjaldaheimildir A-hluta ríkissjóðs eru 543,7 milljarðar króna í fjárlögum fyrir árið 2012 og af þeim eru heildargjöld ráðuneyta 462,1 milljarðar.
- Sjá útgjaldaheimildir A-hluta ríkissjóðs samkvæmt fjárlögum 2012 (PDF 14 KB).
Hér til hliðar má sjá yfirlitsmynd sem sýnir hlutfallslega skiptingu útgjalda milli ráðuneyta samkvæmt fjárlögum 2012.
Listinn sýnir upphæðir í milljörðum króna og hlutfall viðkomandi ráðuneytis í útgjöldum ráðuneyta samkvæmt fjárlögum 2012. Tenglarnir vísa á nánari upplýsingar um hvert ráðuneyti.
Forsætisráðuneyti 0,9 eða 0,2%- Efnahags- og viðskiptaráðuneyti 4,4 eða 0,9%
- Fjármálaráðuneyti 59,4 eða 12,8%
- Iðnaðarráðuneyti 5,7 eða 1,2%
- Innanríkisráðuneyti 62,7 eða 13,6%
- Mennta- og menningarmálaráðuneyti 63,1 eða 13,7%
- Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti 19,4 eða 4,2%
- Umhverfisráðuneyti 8,8 eða 1,9%
- Utanríkisráðuneyti 9,0 eða 2,1%
- Velferðarráðuneyti 227,8 eða 49,3%
Ítarefni
- Stjórnarráð Íslands
- Lög nr. 115/2011 um Stjórnarráð Íslands
- Forsetaúrskurður um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands
- Fjárlög fyrir árið 2012, á althingi.is.
- Frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2012, á althingi.is
- Fjárlög 2011, 1. mál lagafrumvarp 139. löggjafarþingi, ferill, á althingi.is
- Kynning fjármálaráðherra á fjárlagafrumvarpi 2012 og ríkisfjármálaáætlun 2012-2015 (PDF 850 KB)
- Ríkisbúskapurinn 2012-2015, skýrsla um áætlun í ríkisfjármálum (PDF 650 KB)
- Fjárlög.is
- Ferli fjárlagagerðarinnar - skýringarmynd
