Dómsmála- og mannréttindamálaráðuneyti

Dómsmála- og mannréttindaráðuneyti 2010, 5,4%Heildargjöld dómsmála- og mannréttindamálaráðuneytisins samkvæmt fjárlögum 2010 eru 25,0 milljarðar króna eða 5,4% af heildargjöldum ráðuneyta.

Útgjaldaheimildir A-hluta ríkissjóðs eru 560,7 milljarðar króna í fjárlögum fyrir árið 2010 og af þeim eru útgjaldaheimildir ráðuneyta 462.9 milljarðar.

Málefni

Dómsmála- og mannréttindamálaráðuneyti fer með mál er varða:

  1. Lögsagnarumdæmi, dómaskipan, dómstóla, aðra en Félagsdóm, réttarfar og málflutningsmenn.
  2. Meðferð ákæruvalds, er það ber undir dómsmálaráðherra að lögum, og eftirlit með framkvæmd ákæruvalds annars.
  3. Fullnustu refsingar, fangelsi og fangavist, reynslulausn refsifanga, samfélagsþjónustu, náðun, sakaruppgjöf, uppreist æru og framsal sakamanna.
  4. Lögreglu og löggæslu.
  5. Gæslu landhelgi og fiskimiða, sjómælingar og sjókortagerð.
  6. Eftirlit með innflutningi, framleiðslu, sölu og meðferð skotvopna, skotfæra og sprengja.
  7. Framkvæmd áfengislöggjafar, sem eigi ber undir annað ráðuneyti.
  8. Skipströnd og vogrek.
  9. Útlendinga, að frátöldum atvinnuréttindum.
  10. Vegabréf, önnur en diplómatísk vegabréf.
  11. Sifjarétt, erfðarétt, persónurétt og yfirfjárráð.
  12. Eignarrétt og afnotarétt fasteigna og framkvæmd eignarnáms, sem eigi ber undir annað ráðuneyti.
  13. Ríkisborgararétt.
  14. Mannréttindi.
  15. Kjör forseta Íslands, kosningar til Alþingis, kosningar til sveitarstjórna, þjóðaratkvæði og aðrar almannakosningar, sem eigi ber undir annað ráðuneyti.
  16. Birtingu laga og stjórnvaldserinda, útgáfu Stjórnartíðinda, Lagasafns og Lögbirtingablaðs.
  17. Staðfestingu á skipulagsskrám sjóða og stofnana.
  18. Happdrætti, veðmálastarfsemi, hlutaveltur, getraunir og almennar fjársafnanir.
  19. Niðurjöfnunarmenn sjótjóns, dómtúlka og skjalaþýðendur.
  20. Almannavarnir, björgunarmál, samræmda neyðarsímsvörun og öryggisþjónustu í atvinnuskyni.
  21. Kirkjumál og safnaða, þar á meðal embætti biskups og skipan prestakalla.
  22. Grafreiti og útfararstofnanir, þar á meðal bálstofur.
  23. Skaðabætur utan samninga.
  24. Þjóðskrá, lögheimilismál og almannaskráningu.
  25. Fasteignaskráningu og fasteignamat.
  26. Neytendavernd, þar á meðal alferðir.
  27. Vog, mál og faggildingu. Vöruöryggi.


Skipting fjárveitingar - í milljónum króna
Fjárveitingar til helstu verkefna dómsmála- og mannréttindamálaráðuneytisins samkvæmt fjárlögum 2010 eru eftirfarandi:

Löggæslustofnanir og öryggismál
11.124
44,5%
Kirkjumál
4.997
20,0%
Sýslumenn
4.135
16,5%
Dómsmál
1.852
7,4%
Fangelsismál
1.298
5,2%
Landsskrár
801
3,2%
Ráðuneyti
644
2,6%
Neytendamál
161
0,6%
Samtals
25.012
100%


Ítarefni


Þetta vefsvæði byggir á Eplica