Umhverfisráðuneyti
Heildargjöld umhverfisráðuneytisins samkvæmt fjárlögum 2012 eru 8,8 milljarðar króna eða 1,9% af heildargjöldum ráðuneyta.
Útgjaldaheimildir A-hluta ríkissjóðs eru 543,7 milljarðar króna í fjárlögum fyrir árið 2012 og af þeim eru útgjaldaheimildir ráðuneyta 462,1 milljarðar.
Málefni
Umhverfisráðuneytið fer með m.a. mál er varða:
- Náttúruvernd
- Skógrækt og landgræðslu
- Söfnun og skráningu upplýsinga um náttúru landsins, umhverfisrannsóknir og umhverfis-vöktun
- Söfnun upplýsinga um málefni norðurslóða
- Vatnsvernd
- Mengunarvarnir
- Loftslagsvernd
- Hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit
- Efni og efnavörur
- Skipulagsmál
- Stefnumörkun um sjálfbæra þróun
- Mat á umhverfisáhrifum áætlana og framkvæmda
- Upplýsingarétt um umhverfismál
- Landmælingar og grunnkortagerð
- Mannvirki
- Veður og náttúruvá
- Veiðistjórnun, dýravernd og alþjóðaverslun með villt dýr og plöntur
- Erfðabreyttar lífverur
- Framkvæmd alþjóðasamninga um umhverfismál
Skipting fjárveitingar - í milljónum króna
Fjárveitingar til helstu verkefna umhverfisráðuneytisins samkvæmt fjárlögum 2012 eru eftirfarandi:
| Ráðuneyti |
644
|
7,3%
|
| Rannsóknir |
1.430
|
16,3%
|
| Skipulagsmál |
1.859
|
21,1%
|
| Umhverfisvernd |
4.858
|
55,3%
|
| Samtals |
8.792
|
100/%
|
Ítarefni
- Lög nr. 115/2011 um Stjórnarráð Íslands
- Forsetaúrskurður nr. 125/2011 um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands
- Fjárlög.is - greinargerðir og ræður - fjárlagafrumvarp - 3. gjöld A-hluta - skipting eftir ráðuneytum - 14. umhverfisráðuneyti
- Fjárlög.is - greinargerðir og ræður - umfjöllun Alþingis um fjárlagafrumvarp - breytingar Alþingis - 6. fjármál ríkisaðila í A-hluta (sundurliðun 2) - Umhverfisráðuneyti
