Félags- og tryggingamálaráðuneyti
Heildargjöld félags- og tryggingamálaráðuneytisins samkvæmt fjárlögum 2010 eru 128,8 milljarðar króna eða 27,8% af heildargjöldum ráðuneyta.
Útgjaldaheimildir A-hluta ríkissjóðs eru 560,7 milljarðar króna í fjárlögum fyrir árið 2010 og af þeim eru útgjaldaheimildir ráðuneyta 462.9 milljarðar.
Málefni
Félags- og tryggingamálaráðuneytið fer með mál er varða:
A. Velferðar- og fjölskyldumál, þar á meðal:
- Félagsþjónustu sveitarfélaga.
- Málefni fatlaðra.
- Barnavernd.
- Málefni aldraðra.
- Uppbyggingu og öldrunarþjónustu á hjúkrunarheimilum.
- Lífeyristryggingar almannatrygginga og félagslega aðstoð.
- Málefni langveikra barna og alvarlega fatlaðra barna.
B. Húsnæði, þar á meðal:
- Íbúðalánasjóð og varasjóð húsnæðismála.
- Húsaleigumál, þ.m.t. stuðningsaðgerðir við uppbyggingu félagslegra leiguíbúða á vegum sveitarfélaga og félagasamtaka og húsaleigubætur.
- Húsnæðissamvinnufélög, byggingarsamvinnufélög og fjöleignarhús.
C. Vinnumarkað, þar á meðal:
- Réttindi og skyldur á vinnumarkaði, s.s. orlof, starfsmenntun í atvinnulífinu og samskipti við aðila vinnumarkaðarins.
- Félagsdóm.
- Sáttastörf í vinnudeilum.
- Aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
- Vinnumarkaðsaðgerðir, þ. á m. vinnumiðlun, mat á vinnufærni atvinnuleitenda og skipulag vinnumarkaðsúrræða.
- Atvinnuleysistryggingar.
- Málefni innflytjenda.
- Atvinnuréttindi útlendinga.
- Ábyrgð á launum við gjaldþrot.
- Fæðingar- og foreldraorlof.
Skipting fjárveitingar - í milljónum króna
Fjárveitingar til helstu verkefna félags- og tryggingamálaráðuneytisins samkvæmt fjárlögum 2010 eru eftirfarandi:
| Almannatryggingar |
60.374
|
46,9%
|
| Vinnumál |
39.985
|
31,0%
|
| Málefni aldraðra |
14.256
|
11,1%
|
| Málefni fatlaðra |
11.171
|
8,7%
|
| Málefni barna |
964
|
0,7%
|
| Stjórnsýslustofnanir |
566
|
0,4%
|
| Annað |
566
|
0,4%
|
| Ráðuneyti |
481
|
0,4%
|
| Húsnæðismál |
466
|
0,4%
|
| Samtals |
128.828
|
100%
|
Ítarefni
