Heilbrigðisráðuneyti
Heildargjöld heilbrigðisráðuneytisins samkvæmt fjárlögum 2010 eru 102,4 milljarðar króna eða 21,1% af heildargjöldum ráðuneyta.
Útgjaldaheimildir A-hluta ríkissjóðs eru 560,7 milljarðar króna í fjárlögum fyrir árið 2010 og af þeim eru útgjaldaheimildir ráðuneyta 462.9 milljarðar.
Málefni
Heilbrigðisráðuneytið fer með mál er varða:
A. Heilbrigðisþjónustu, þar á meðal:
- Lýðheilsu og forvarnir, þ.m.t. geislavarnir.
- Heilsugæslu.
- Sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir.
- Heilbrigðisþjónustu á hjúkrunarheimilum.
- Endurhæfingar- og meðferðarstofnanir.
- Lyf og lækningatæki.
- Starfsréttindi í heilbrigðisþjónustu og löggildingu starfsheita í heilbrigðisgreinum.
B. Sjúkra- og slysatryggingar almannatrygginga og sjúklingatryggingu.
Skipting fjárveitingar - í milljónum króna
Fjárveitingar til helstu verkefna heilbrigðisráðuneytisins samkvæmt fjárlögum 2010 eru eftirfarandi:
| Sjúkrahús og sérstæð sjúkrahúsaþjónusta |
38.215
|
37,3%
|
| Tryggingamál |
28.961
|
28,3%
|
| Heilbrigðisstofnanir |
14.881
|
14,5%
|
| Endurhæfing o.fl. |
9.439
|
9,2%
|
| Heilsugæsla |
7.356
|
7,2%
|
| Annað |
1.649
|
1,6%
|
| Eftirlits- og stjórnsýslustofnanir |
1.269
|
1,2%
|
| Ráðuneyti |
603
|
0,6%
|
| Samtals |
102.373
|
100%
|
Ítarefni
- Reglugerð nr. 177/2007 um Stjórnarráð Íslands (PDF 68 KB)
- Reglugerð nr. 101/2009 um breytingu á reglugerð nr. 177/2007, um Stjórnarráð Íslands (PDF 32 KB)
- Fjárlög.is - greinargerðir og ræður - fjárlagafrumvarp - 3. gjöld A-hluta - skipting eftir ráðuneytum - 08. heilbrigðisráðuneyti
- Fjárlög.is - greinargerðir og ræður - umfjöllun Alþingis um fjárlagafrumvarp - breytingar Alþingis - 6. fjármál ríkisaðila í A-hluta (sundurliðun 2) - Heilbrigðisráðuneyti
