Tekjutilfærslur

Tekjutilfærslur eru greiðslur frá hinu opinbera án þess að á móti komi vinnuframlag eða önnur gæði og þær eru mikilvægt tæki til tekjujöfnunar.
Hlutfall tekjutilfærslna í útgjöldum hins opinbera er mikið enda eru almannatryggingar taldar til hins opinbera, ásamt ríki og sveitarfélögum.
Tekjutilfærslur og hagstjórn
Framboð og eftirspurn eftir gæðum í hagkerfinu eru misjöfn frá einu tímabili til annars. Hið opinbera getur jafnað þessar sveiflur í hagkerfinu með því að auka eða draga úr sinni eftirspurn. Með því að auka eftirspurn sína á tímum þegar almenn eftirspurn í hagkerfinu er minni en framboð, getur hið opinbera dregið úr áhrifum niðursveiflu í hagkerfinu.
Árið 2010 námu rekstrar- og neyslutilfærslur um 37% af útgjöldum ríkissjóðs eða 225 milljörðum króna. Á myndinni hér að neðan má sjá í hvaða málefni er verið að færa peninga annars staðar frá.

Tilfærslur til heimilanna
Tilfærslur til heimilanna koma að miklu leyti frá Tryggingastofnun ríkisins sem annast langmestan hluta almannatrygginga ríkisins, svo sem lífeyristryggingar, félagslegar bætur og sjúkra- og slysatryggingar. Af þeim 225 milljörðum króna sem fóru í tilfærslur á árinu 2010, fóru um 81 milljarður í gegnum Tryggingastofnun, eða um 36% af tilfærslum ríkisins.
Auk tilfærslna sem fara í gegnum Tryggingastofnun ríkisins njóta heimilin í landinu tilfærslna til annarra aðila. Greiðslur vegna búvöruframleiðslu eru dæmi um slíkar tilfærslur enda hafa þær áhrif á verðlag landbúnaðarafurða.
