Útgjöld málaflokka
Útgjöldum ríkisins má einnig skipta eftir því til hvaða málefna þau flokkast. Til grundvallar er lagður alþjóðlegur staðall Sameinuðu þjóðanna (Classification of the Functions of Government - COFOG).
Stærsti útgjaldaflokkurinn árið 2010 var almannatryggingar og velferðarmál sem var um 22% af heildarútgjöldum ríkissjóðs.
Málaflokkar
Hér að neðan má sjá skiptingu útgjalda til þessara mála í milljörðum króna árið 2010 en þá voru útgjöldin alls 602 milljarðar króna.

Óregluleg útgjöld ríkissjóðs sveiflast jafnan verulega frá einu ári til annars. Árið 2010 námu þau 55,6 milljörðum króna eða 9,2% af gjöldum ríkissjóðs samanborið við 36,1 milljarð króna eða 6,2% árið á undan. Árið 2010 eru þessi gjöld einkum vegna áfallinna ríkisábyrgða 27,5 milljarðar króna, afskrifta skattkrafna 16,6 milljarðar króna og lífeyrisskuldbindinga 9,0 milljarðar króna. Áfallnar ríkisábyrgðir á árinu 2010 eru að langstærstum hluta til vegna falls gamla Landsbankans í október 2008.
